Maltese
Maltese er glæsilegur smáhundur og heillandi tegund með gólfsíðan hvítan silki feld. Hann hentar vel sem gæludýr fjölskyldunnar og einnig fyrir þá sem langar að eiga hund sem þarfnast mikillar feldhirðu og dúllerís, sem jafnframt er þá glæsilegur sýningarhundur. Maltese er heilbrigður og glaðlegur smáhundur sem er jafnframt mjög duglegur og finnst gaman í göngutúrum.
En hreyfing er samt ekkert endilega skilyrði fyrir hann. Hægt er að þjálfa þá í hlýðni svo og í hundafimi. Tegundin er einstaklega ljúf í skapi miðað við margar smáhundategundir og henta vel með börnum.
Maltese fara ekki úr hárum en þarfnast á móti mikillar feldhirðu. Feldurinn á að vera glansandi með silkiáferð án þess að hafa undirull. Þarf að baða þá 1 sinni í viku og greiða þeim á hverjum degi til að halda feldinum fallegum og flókalausum. Á sýningarhundum er æskilegt að pakka inn feldinum til að ná úr öllu sliti og svo að feldurinn sé sem glæsilegastur. Sumir eigendur kjósa hinsvegar að klippa niður feldinn og er það oft gert með gæludýr og hunda sem fara ekki á sýningar.
Annars eiga þeir að hafa síðan feld á öllum líkamanum og í andliti sítt skegg. Hárin á höfðinu eru tekin í teygju til að þau lafi ekki niður í augu.
En ekkert jafnast samt á við maltese í sínum besta skrúða með fallega síða hvíta silki skikkju.
Stærðin á Maltese er þægileg þeir eru um 20-25 cm á herða kamb og 3-4 kg. Því hentar stærðin mörgum og þeir passa inn í lífsstíl allra. Hann er kátur og alltaf tilbúinn að leika eða fara í smá göngu, svo eru þeir alltaf tíl í að kúra bara hjá eigandanum og fjölskyldunni.
RAS fyrir Maltese