Griffon Belge, Griffon Bruxellois og Petit Brabanqon
Griffon-hundar eru upprunnir í Belgíu og njóta vaxandi vinsælda sem heimilishundar hvarvetna í heiminum.
Fyrsti griffon-hundurinn kom til Íslands vorið 2006.
Útlit
Ásjóna þeirra, stór augu og stutt trýni setja sterkan svip á þessa hunda, sem hafa fyrir vikið nánast mannlegan svip.
Fullþroskaður griffon er kröftugur að sjá, þótt hann sé smávaxinn, um 3,5 – 6 kg. að þyngd.
Lunderni
Griffon er kátur og vökull hundur sem hænist mjög að eiganda sínum. Hann þolir illa einveru og honum lyndir vel við önnur dýr, enda er hann friðarsinni frá náttúrunnar hendi. Griffon geltir gjarnan og lætur vita þegar gesti ber að garði.
Umhirða
Snögghærðir hundar þurfa litla sem enga feldhirðu, en stríhærða hunda þarf að snyrta reglulega til að feldgerðin haldi sér. Hárlos er ekki mikið.
Hreyfing
Griffon er dugmikill göngugarpur sem hefur gaman af því að hlaupa um holt og hæðir, en þess á milli nægir honum að hlaupa um í rúmgóðum garði.
Sýningar
Hundasýningar HRFÍ eru mikilvægur liður í hundarækt. Margir Griffon-hundar hafa verið sýndir hér á landi með góðum árangri og þó nokkrir þeirra orðnir íslenskir og alþjóðlegir meistarar.
http://www.griffonsektionen.com/
RAS fyrir Griffon