Franskur Bulldog
Uppruni: Frakkaland.
Útgáfudagur gilds ræktunarmiðs: 28.04.1995.
Eiginleikar: Félagi, heimilishundur, varðhundur.
FCI-flokkun: Tegundahópur 9. Félagar og gæluhundar. Litlir Molossian hundar. vinnuprófs er ekki krafist.
Stærð : 8- 14 kg .
Sagan og uppruninn
Franskur Bulldog er afkomandi af hinum forna Tíbetska eða Asíska Mastiff. Þegar að tegundinn barst til Englands, var henni blandað við Terrier hunda þar í landi, og stærð tegundarinnar minnkaði gegnum aldirnar. Þó svo að skoðanir sérfræðinga tegundarinnar séu margar, er almennt talið að þessi tegund sé aðalega árangur þriggja kynblanda, Enska Bulldog sem gaf tegundinni bygginguna og stóran hluta af persónueinkennum , Terrier sem gaf tegundini uppréttu eyrun og hraðan , og Pug sem gaf henni hringlaga augun .
Á miðri 19 öld, kom lítill hundur til Parísarborgar frá Bretlandi, og þessi litli hundur hafði eiginleika mjög líka þeim og nútíma Franski Bulldog hefur. Hundurinn varð strax eftirlæti Parísarbúa, sérstaklega þá í ríkari hverfunum. Kjötkaupmenn tileinkuðu sér tegundina fljótlega líka, þar sem að hún var mjög lipur og losaði sláturhúsin og verslanirnar við meindýr. Stórkaupmenn og konur í fínni hverfunum notuðu hann líka sem varðhund, burt séð frá smægðinni því hann var sterkur og hraður. Það er einnig sagt að bílstjórar leyfðu þá í vögnum sínum og þótti það kostur. Í enda 19 aldarinnar, vildu flest allir Franskir listamenn eiga einn svona hund. Þeir listamenn sem áttu slíka hunda voru t.d. seduced Chaliapine, Mistinguett, Colette, Caruso og Joséphine Baker. Og jafnvel Evrópska kongafólkið var heillað af Franska Bulldog, með hrekkjótta augnaráðið. Það mátti sjá slíka hunda í kjöltu hjá Edward konungi VII, eða við sumahús Nicolas II.
Fyrsti tegundaklúbburinn var stofnaður árið 1880 í Frakklandi. Fyrsta ræktunarmiðið var skrifað og opinberlega gefið út árið 1898.
Báðar heimstyrjaldirnar tóku því miður mörg líf Franska Bulldog hunda, sem og fleiri tegunda. Tegundin féll rólega gleymsku. Endurlífgun hennar hófst þó aftur mörgum árum seinna, og skráningar Franska Bulldogs í Frakklandi hafa hækkað um 486 skráða hvolpa árið 1991, í 1600 skráða hvolpa árið 2000.
Kraftur og atorka
Franski Bulldog verður að sýna merki um krafta og atorku við fyrstu sýn. Hann er þéttur og vöðvamikill, líkt og hjá Mastiff hundum, en mun minni. Höfuðið er sterkt, breytt og ferhyrnt. Trýni stutt, lengd þess er u.þ.b. 1/6 af lengt höfuðsins. Fellingar í andliti eru eru samræmdar og ekki of margar. Eyrun, sem að einkennir tegundina, eru borin upprétt og bein. Þau eru breið við kollinn og ávöl í endann. Skottið er lítið og breytt og mjókkar í átt að endanum. Margir litir eru leyfilegir Stutti, þykki og gljáandi feldurinn er mjúkur.
Ofsalega blíður og vel gefinn
Hann er félagslyndur að eðlisfari, líflegur, gáskafullur og ákafur. Einstaklega ástúðlegur gagnvart eiganda sínum og börnum. Það þarf ekki mikið til aðgera Franska Bulldog ánægðan. Franski Bulldog er mjög vingjarnlegur hundur með viðráðanlegan persónuleika. Hann aðlagast að eiganda sínum, hvort sem það er kraftmikið par eða rólegt, eldra fólk. En honum líkar ekki að vera skilinn eftir einn allan daginn. Hann vill alltaf vera nálægt eiganda sínum þeir gelta sjaldan helst ef eitthvað nálgast húsið sem þeim líst ekki á ,hann passar sitt umhverfið mjög vel . Hann á það til að vera eigingjarn á fólkið sitt gangvart öðrum hundum . Franskur Bulldog er afar auðveldur í allri þjálfun þeir eru fljótir að læra svo lengi sem þeim finnst skemmtilegt
þeir geta verið þverir og þetta eru miklir karekterar .
Það þarf mikið að koma til svo Franskur Bulldog gefi eftir gagnvart öðrum hundum , hann sækist alltaf eftir því að vera nr 1 hjá sínum húsbónda .
Heilsa
Franskur Bulldog hentar mjög vel í hundafimi og þeir geta hlupið hratt og hafa mikið úthald . Þetta er mjög félagslyndur hundur og nýtur þess að vera í kringum aðra hunda og dýr. Franski Bulldog er sveitalegur og kröftugur. Kröftugur vegna þess að tegundin er almennt mjög heilbrigð, og ekki hrjáir hana neinir sérstakir sjúkdómar , það sem helst er að hrjá hann snýr að öndun eða öndunarfærum , stutt nef og þröngar nasir geta haft þau áhrif að þeir eiga erfitt með öndun sérstaklega eftir mikil hlaup og í heitu veðri . Franskur Bulldog er líka afar hugrakkur og fátt sem hræðir hann .
Líftími tegundarinnar er u.þ.b. 10-12 ár, það er mjög góður líftími miðað við Molossians hunda.
Keisaraskurður er líka algengur hjá tíkunum þær eiga erfitt með að fæða hvolpa stærri en ca 200 gr , oft velja ræktendur bara keisaraskurð og láta ekki á það reyna hvort tíkin geti fætt og er keisaraskurður eflaust oftar framkvæmdur en í raun þörf er á .
Umhirðan
Burst þarf feldinn reglulega annars er umhirðan mjög þægileg , Þeir fara úr hárum 1x – 2x á ári . þess á milli er ekki hárlos , hárlosa tímabilið er líka mjög stutt mjög þægilegir hvað það varðar .
Að velja Franskan Bulldog
Tegundin er nokkuð vinsæl og hefur fjölgað svo kölluðum ,,ræktendum" sem að hugsa aðeins um gróða. Franskur Bulldog er tegund sem nokkuð erfitt er að rækta. Gotin eru yfirleitt lítil og flestar fæðingar eru teknar með keisara. Finndu ábyrgan ræktanda sem leggur metnað í það sem hann/hún er aðgera og getur sýnt þér allt gotið, gotaðstöðu, móður og föður. Kannaðu ættina hvað varðar skapgerð og heilbrigði, sem og útlit og sýningarferil. Hvolpurinn skal vera hreinn og fjörugur og alinn upp inná heimili .
http://www.bulldogklubben.dk/
http://www.fbksverige.se/
http://www.hbc-fransebulldog.nl/
http://www.norskbulldogklubb.net/
RAS fyrir Franskan Bulldog