Bichon Frise
Bichon frise er glaðlyndur, fjörugur og blíður smáhundur sem hefur notið síaukinna vinsælda hér á landi. Hann er duglegur og hefur einstaklega gaman af að vera í námunda við fólk og nýtur hverrar mínútu sem eigandinn veitir honum í þjálfun og útiveru. Han er lítill og hæð að herðakambi á ekki að vera meiri en 30 sentimetrar.
Feldurinn er fíngerður og silkikenndur og er hann hrokkinhærður hvunndags en á tillidögum, þegar búið er að snyrta hann vel til, hefur verið greitt úr krullunum. Feldurinn er majllahvítur og æskilegt er að húðin sé dökk. Bichon frise er með síð eyru sem liggja þétt niður með höfðinu. Augun eru kringlótt og dökk og oft vottar fyrir glettni í þeim þegar hundurinn brosir. Augnhvarmar eru dökkir sem og nefbroddurinn og skottið fellur tígurlega fram á bakið.
Bichon frise er þægilegur heimilishundur, hann þarf ekki mikla hreyfingu þó svo hann hafi mjög gaman af því að vera úti. Hann fer ekki úr hárum en feldurinn, sem er tvöfaldur, þarf nokkra umhirðu og bursta þarf hann nokkuð reglulega. Reynslan af þeim hér á landi sýnir að þeir gelta lítið og eru mjög heimakærir.
Bichon frise er fransk-belgískur að uppruna en sagan hermir að sjómenn hafi komið með hann til Kanaríeyra á 14. öld. Hann var vinsæll meðal kóngafólks á öldum áður og einnig var hann nokkuð notaður í sirkusa enda auðvelt að kenna honum alls konar hundakúnstir. Fyrstu sögur af honum í Bandaríkjunum eru frá árinu 1956 og þar var hann fyrst ættbókarfærður 1972. Bichon frise er vinsæll sýningarhundur en fyrst var hann sýndur á Croft sýningunni í Bretlandi árið 1980.
RAS fyrir Bichon Frise