Stjórn smáhundadeildar er einnig fús að veita hvers kyns upplýsingar og liðsinna félagsmönnum innan deildarinnar eftir fremsta megni.
Heilbrigði skiptir miklu máli í ræktun og því reynir deildin að hafa allar þær upplýsingar sem deildarmeðlimir þurfa á að halda á einum stað. Ræktendur innan smáhundadeildar eru beðnir að kynna sér vel þær kröfur sem gerðar eru til heilsufarsskoðana ræktunardýra.
Ræktandi sem brýtur gegn reglugerð um ættbókarskráningu, getur átt á hættu að hvolpar hans fáist ekki ættbókarfærðir, auk þess sem hann verður sjálfkrafa kærður til siðanefndar HRFÍ. Eitt af markmiðum stjórnar smáhundadeildar er að fækka þeim ræktendum sem kærðir eru til siðanefndar og eru ræktendur því hvattir til að leita sér upplýsinga áður en hundar eru paraðir. Tengiliðir eru, ásamt stjórn smáhundadeildar, fúsir til að veita upplýsingar og leiðbeina ef eftir því er óskað.
Reglur um heilsufarsskoðanir ræktunardýra frá 1. apríl 2021
Við pörun skulu öll undaneldisdýr smáhundadeildar vera með gilt augnvottorð að undanskildum Frönskum bolabít og Pug (gildistíminn er 25 mánuðir) og vera með hnéskeljavottorð (gildir ævilangt eftir 2 ára en annars í 12 mánuði) nema Standard púðla og Tibetan Terrier sem skulu vera mjaðmamyndaðar. Þá er lágmarksaldur tíka við pörun 20 mánuðir nema fyrir Standard Púðlu og Tibetan Terrier sem skulu vera að lágmarki 24 mánaða við pörun.
Allir félagsmenn ættu að lesa grundvallarreglur HRFÍ, og eru þeir sem hyggjast rækta hunda sérstaklega hvattir til að kynna sér reglurnar vel sem og reglur um skráningu í ættbók. Reglurnar má finna hér. Stjórn smáhundadeildar hvetur ræktendur til að afla sér upplýsinga um það hvort arfgengir sjúkdómar eru þekktir í tegundinni og taka tillit til þeirra við pörun. Augnskoðun er að öllu jöfnu í boði fjórum sinnum á ári og má fá upplýsingar um næstu augnskoðanir hér.
Hér fyrir neðan má finna nánari upplýsingar um þær reglur sem gilda fyrir einstakar tegundir.
BICHON FRISE Undaneldisdýr skulu hafa gilt augnvottorð og hnéskeljavottorð. Lámarksaldur tíka við pörun er 20 mánaða.
BOSTON TERRIER Undaneldisdýr skulu hafa gilt augnvottorð og hnéskeljavottorð. Lágmarksaldur tíka við pörun er 20 mánaða.
CHINESE CRESTED Feldgerð powder puff skal skrá í ættbók með PP. Undaneldisdýr skulu hafa gilt augnvottorð og hnéskeljavottorð. Hundar sem greinst hafa með Retinopathy (Pigmentary chorioretinopathy) fara í ræktunarbann. Lámarksaldur tíka við pörun er 20 mánaða.
CONTINENTAL TOY SPANIEL (PAPILLON/PHALÉNE) Skráning afbrigða í ættbóki: P (Papillon) ef eyru eru upprétt, PH (Phaléne) ef eyru falla fram. Para má saman papillon/phalene. Hvolpa skal skrá þannig: Papillon undan tveimur papillon foreldrum, phaléne undan tveimur phaléne foreldrum. Hvolpa úr papillon/phaléne pörun skal skrá sem það afbrigði sem ræktandi telur þá vera við ættbókarskráningu. Varðandi breytingu á skráningu á papillon/phalene afbrigði, sjá sýningareglur HRFÍ. Undaneldisdýr skulu hafa gilt augnvottorð og hnéskeljavottorð. DNA prófa skal undaneldisdýr fyrir PRA 1. Lámarksaldur tíka við pörun er 20 mánaða.
COTON DE TULEAR Undaneldisdýr skulu hafa gilt augnvottorð og hnéskeljavottorð. Lágmarksaldur tíka við pörun er 20 mánaða.
FRENCH BULLDOG Undaneldisdýr skulu hafa gilt hnéskeljavottorð. Lágmarksaldur tíka við pörun er 20 mánaða.
GRIFFON Skráning feldgerðar: Griffon Belge og Griffon Bruxelloise: R (rough), Petit Brabançon: S (short). Afbrigði Griffon má para saman og skulu hvolpar skráðir sem það afbrigði sem ræktandi telur þá vera við ættbókarskráningu. Undaneldisdýr skulu hafa gilt augnvottorð og hnéskeljavottorð. Lágmarksaldur tíka við pörun er 20 mánaða.
HAVANESE Undaneldisdýr skulu hafa gilt augnvottorð og hnéskeljavottorð. Lágmarksaldur tíka við pörun er 20 mánaða.
JAPANSKUR CHIN Undaneldisdýr skulu hafa gilt augnvottorð og hnéskeljavottorð. Lágmarksaldur tíka við pörun er 20 mánaða.
KING CHARLES SPANIEL Skottlengd skal skráð. Undaneldisdýr skulu hafa gilt augnvottorð, hjartavottorð og hnéskeljavottorð. Greinist hundur með arfgenga starblindu (hereditary cataract) skal hann skráður í ræktunarbann. Lámarksaldur tíka við pörun er 20 mánaða.
LHASA APSO Undaneldisdýr skulu hafa gilt augnvottorð og hnéskeljavottorð. Lámarksaldur tíka við pörun er 20 mánaða.
LITTLE LION DOG Undaneldisdýr skulu hafa gilt augnvottorð og hnéskeljavottorð. Lámarksaldur tíka við pörun er 20 mánaða.
MALTESE Undaneldisdýr skulu hafa gilt augnvottorð og hnéskeljavottorð. Lágmarksaldur tíka við pörun er 20 mánaða.
PEKINGESE Undaneldisdýr skulu hafa gilt augnvottorð og hnéskeljavottorð. Lágmarksaldur tíka við pörun er 20 mánaða.
POODLE, STANDARD Skráning stærðarflokks: S (standard). Undaneldisdýr skulu hafa gilt augnvottorð og vera mjaðmamynduð.
POODLE, MEDIUM/MINATURE/TOY Skráning stærðarflokka (hæð á herðakamb): MED (medium, yfir 35cm til og með 45 cm), MIN (miniature, yfir 28 cm til og með 35 cm), TOY (yfir 24 cm til og með 28 cm). Para má saman hunda af öllum stærðum, utan standard sem einungis má para innan stærðar. Skrá skal hvolp sem það stærðarafbrigði sem foreldrar/stærra foreldri tilheyrir. Endanleg stærð skal ákvarðast á fyrstu sýningu eftir 15 mánaða aldur, sjá sýningareglur HRFÍ. Undaneldisdýr skulu hafa gilt augnvottorð og hnéskeljavottorð. DNA prófa skal undaneldishunda vegna prcd-PRA. Lámarksaldur tíka við pörun er 20 mánaða.
PUG Undaneldisdýr skulu hafa gilt hnéskeljavottorð. Lágmarksaldur tíka við pörun er 20 mánaða.
RUSSKIY TOY Skráning feldgerðar: S (smooth-haired), L (long-haired). Para má saman feldgerðir. Hvolpur skal skráður með þá feldgerð sem ræktandi telur hann hafa við skráningu í ættbók. Undaneldisdýr skulu hafa gilt augnvottorð og hnéskeljavottorð. Lágmarksaldur tíka við pörun er 20 mánaða.
TÍBET TERRIER Undaneldisdýr skulu hafa gilt augnvottorð og vera DNA prófuð vegna PRA (RCD4) og PRA3. Einnig skal DNA prófa vegna PLL og ræktunarbann er á hunda sem greinast með sjúkdóminn. Undaneldisdýr skulu mjaðmamynduð.
Tilmæli sem gilda um tegundir innan smáhundadeildar (gilda frá 1. mars 2021)
Augnskoðun – skv. reglum HRFÍ skulu allir hundar augnskoðaðir fyrir pörun, að undanskildum Frönskum bolabít og Pug, og gildir augnvottorð í 25 mánuði. Tilmæli Smáhundadeildar HRFÍ eru að greinist hundur með arfgengan augnsjúkdóm skal gæta þess að hann sé ekki paraður við hund með sama arfgenga augnsjúkdóminn.
Hnéskeljaskoðun – skv. reglum HRFÍ skulu allir hundar innan smáhundadeilar undirgangast hnéskeljaskoðun (að undanskilum Tibetan Terrier og Standard púðlu sem skulu mjaðmamyndaðar). Tilmæli Smáhundadeildar HRFÍ eru að ekki ætti að nota til ræktunar hunda sem eru með hærra en 2 í samanlagðri gráðun hnéskelja og að greinist hundur með los ætti að para hann við einstakling sem er laus við los.
Sýningarárangur – Tilmæli Smáhundadeildar eru að ræktunardýr ættu að vera sýnd að minnsta kosti einu sinni á viðurkenndum sýningum á vegum HRFÍ, hjá deildum félagsins eða hafa farið í ræktunardóm og hljótið að lágmarki einkunnina Very Good.
Stjórn smáhundadeildar er einnig fús að veita hvers kyns upplýsingar og liðsinna félagsmönnum innan deildarinnar eftir fremsta megni.
Netfang stjórnar: mailto:[email protected]